Ég átti vægast sagt hræðilega nótt í flugvellinum í París í 15 tíma. Svaf lítið sem ekkert. Mætti í flug um hádegið á laugardeginum, 12 tíma beint flug til Víetnam. Flugið var svosem ágætt þar sem ég svaf nánast allann tímann eftir svefnlausa nótt. Ég hélt að það yrði ekki gott þarsem það voru hjón sem sátu við hliðiná mér og konan byrjaði að syngja og lifa sig alveg geðveikt inní tónlistina! Ég var ekki að nennna þessu! En sem betur fer gerði hún þetta bara nokkrum sinnum inná milli og þetta endaði sem bara fínasta flug :)
Ég mætti á flugvöllinn og þar beið starfsmaður frá VPV (volulteers for peacr vietnam) eftir mér og tók taxa með mér á staðinn sem við gistum á. Traffikin hérna er crazy! Skil ekki hvernig þetta fúnkerar. Mjög margir á vespun og troða sér allstaðar inná milli.
Við komum uppá VPV og ég hendi dótinu mínu uppí herbergið mitt og fer með 2 öðrum sjálfboðaliðum í skoðunarferð. Við tókum rútu þangað, hún var troðin og ógeðslega heitt, það stóð maður í hurðinni sem tók á móti okkur, hann ætlaðist til þess að við hoppuðum inn á ferð! Við reyndum okkar allra besta, hlupum á eftir rútunni og reyndum að troða okkur inn á ferð! Hann ætlaði sko ekki að dragast afturúr í umferðinni og stoppa, neinei ;) En við skoðuðum eftirlíkingu af Notre Dame, fórum í safn, mall og skoða um á þessum endalausu götumörkuðum. Við fengum okkur bubble tea og drukkum á þessum kózy stað (mynd).
Ég sef í koju, hef sofið á betri dýnu og með betri kodda en ég lifi það nú af. En það sem ég held ég lifi ekki af er að sofa með flís teppi!!! Ó mæ ég bara dó næstum úr hita í nótt! Með viftuna á milljón Í rúminu mínu og í fötum (væri pínu vandræðalegt að sofa bara á brókinni þegar maður er með 4 öðrum í herbergi!) Verkefni dagsins: kaupa þunnt lak til að sofa með og hælsærisplástur eftir labb gærdagsins. Ég þakka svo guði fyrir að vera ekki mikið stærri því það munar ekki miklu á að lappirnar á mér standi út fyrir rúmið.
Við fórum á svona kynningu í morgun. Fengum að vita meira um verkefnin okkar og lærðum smá víetnamísku fuuu... Hún er erfið! Við vorum svo að enda við að borða hádegismatinn okkar. Erum með kokk sem eldar 3 máltíðir á dag fyrir okkur, maturinn er búinn að vera mjög góður til þessa. VPV húsið er lika bara ótrúlega snyrtilegt, kom mér allavega á óvart. En ég á samt eftir að hitta húsmúsina, en hitti annars gekkó (eðlu) hérna í gær og sá 2 rottur bara sig í háskólanum sem ég skoðaði í gær. Það er bara byrjunin lömbin mín, ég á eftir að vakna einn daginn við það að halda að pacas sé kominn uppí rúm til min. Ég sef líka við gluggann sem er opinn á næturnar!
Annars þá er ég með smá frían tíma núna og er svo að fara eftir 2 tíma á staðinn sem ég verð að kenna á, spennó!
Smell you later!
Flísteppi hljómar æðislega!! hehee en iss maður vertu bara á brókinni og í hlýrabol, getur ekki skipt nokkru máli!
SvaraEyðaHlakka til þegar "pacas" skríður uppí til þín..
Anna Rósa
Kaupa bara boxer nærbuxur, verður allt of heitt að veraí náttfötum.
SvaraEyðaEn gaman að fylgjast með, reyni að vera reglulegur gestur hérna :)
Karólína
hlakka til að lesa meira :)
SvaraEyða