Ég fór í gríðalega fílu við bloggið mitt því allt hreinsaðist út sem ég var búin að skrifa. En ég ætla að klára að skrifa um Víetnam þó ég sé að skrifa þetta mánuði seinna en ég ætlaði að birta þetta blogg.
Helgina 12.-15. Júlí fórum við 4 saman til Phu Quoc sem er eyja í Víetnam. Við þurftum að taka rútu í 8 tíma minnir mig og speedbát í 4 tíma. Við náðum besta staðnum í the slepping bus eða aftast, þar var nóg pláss fyrir okkur og við komum okkur vel fyrir. Ég tala alltaf um það að það sé ekkert mál fyrir mig að sofna hvar sem er, en ég gat bara engann veginn sofnað, en þetta var samt hin fínasta rútuferð.



