Á morgun flýg ég til París og gisti þar eina nótt. Guð má vita hvar, gæti verið að ég endi bara á því að eyða rómantískri nótt með sjálfri mér á bekk á flugvellinum, kemur allt í ljós. Frá París flýg ég svo beint til Víetnam, 11 klst flug takk fyrir pent. Ég lendi svo í Víetnam kl 6 um morguninn (á staðartíma), þar sækir mig einhver frá samtökunum úti. Spurning svo hvort ég komist beint í gegnum flugvöllinn eða verði stoppuð og yfirheyrð í einhvern tíma. Það verður bara ákveðinn stemmari fyrir sig ;)
Ég er eiginlega ekkert að trúa því að ég sé að fara út, hvað þá ein og í allann þennann tíma. Þetta verður ævintýri í gegn sem gleymist seint.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli